|
|
16.03.2007 09:43:24 / hlussan
hæ hæ gengur ennþá rosalega vel og já ég skol sko segja
ykkur það að hárið kom barasta vel út, ég er allaveganna ánægð,
bara mjög ánægð með það sparaði mér ógeðslega mikinn
pening sem er gott fyrir fátækan námsmann...
steikti mér kjúklingabringur í kvöldmatinn í gær, papríkur og
lauk og gerði rófufranskar og kokteilssósu, namm namm namm, bara
gott að borða hollt 
alveg ótrúlega fyndið hvað manni líður vel á þessu matarræði og
af þeirri vitneskju að maður sé að gera eitthvað gott fyrir sjálfan
sig, fylgir allt að bæði að innan sem utan.
er að fara á árshátíð í kvöld og næ því miður ekki að vigta,
pantaði mér grænmetissúpu í forrétt vona að hún verði ekki
löðrandi í rjóma, fæ mér svo lambakjöt, ætla að sleppa sósunni og
borða auka grænmeti sem ég tek með. ætla svo að gefa einhverri
heppni skólasystur minni eftirréttinn minn og sleppa áfengi í
kvöld. er að vonast til að ná allaveganna kg þessa vikunna 
takk fyrir kommentin, þau eru svo peppandi
»
13.03.2007 22:03:02 / hlussan
kæru landsmenn, vinir bæði nær og fjær og síðast en ekki síst
elskuleg fjölskylda   já ég er í essinu mínu S S S S-inu
mínu. það fóru hvorki meira né minna en 2.9kg á þessari viku og vil
ég gefa mínar bestu þakkir til MÍN fyrir vel unnin störf
hver er það annar sem ber ábyrgð á vaxtarlagi manns en maður
sjálfur. Ætla að halda áfram að vera að meika það úr mjónu og er
ekki frá því að það ómi í höfði mínu,, here she comes to save the
day,, dadadadadadada.
er í hárgreiðslu, hehehe keypti mér lit í hárið í fyrsta sinn á
ævinni og það dökkan, sko það kostaði mig samkvæmt verðkönnunn
minni að gera hárið eins og ég vil það um 16þús krónur og alveg upp
í rúmar 20þús á stofu   og þar sem við erum fáttækir námsmenn
verður kallinn settur í að aðstoða við strípun og svo verður bara
skellt upp húfunni ef að illa fer, eða auglýsa að þetta sé nýjasta
tískan  
var svo að leita mér af þynningarskærum ef eitthver veit hvort
maður getur keypt svoleiðis (sko fyrir hárið) á skid og ingenting
má sá hinn sami upplýsa mig hið fyrsta  
ok baráttukveðjur til okkar allra ,, here they come to
save the scales,, 
»
11.03.2007 22:20:03 / hlussan
»
09.03.2007 14:22:44 / hlussan
jæja enn ein heiðarleg tilraun til að berjast við púkann. Náði
að bæta alveg hellings slatta á mig og ætla ekki að skella því inn
ætla að byrja á því að ná mér niður í þau kg sem ég var búin að
skrá niður og halda þaðan áfram, vonandi verður það sem fyrst

ég ss var svo dugleg að mæta aftur á ddv byrjendafund og kyngja
stolti mínu. Bara þýddi ekkert annað en að mæta með skottið á milli
lappanna og feisa niðurlæginguna. Mér leið samt alveg svakalega vel
á eftir og fann að þetta var það sem ég þurfti. Eftir þetta er ég
búin að vera svo ógúrlega dugleg að það hálfa væri
helmingurinn nóg 
búin að vera borða lax, kjúlla, lítinn ost, eggin í morgunmat og
þess háttar. Ég er kannski bjartsýn en er að vonast eftir að 2kg
fjúki þessa vikuna þar sem þetta er mín fyrsta vika núna, svona til
þess að komast í nýjan tug, sem myndi létta heilmikið á sálinni og
hnjánum 
stefni síðan á lágmark 1kg á viku, næstu 10 vikurnar en allt
niður á við er jákvætt, ætla s.s að vera pæja í sumar.
safnast samt þegar saman kemur og núna vona ég að þau fari niður
þessi bévítans kíló en komi ekki aftur.
Markmiðið er að komast sem næst kjörþyngd fyrir 30 ára sem
verður síðla sumars 
»
08.01.2007 12:37:06 / hlussan
»
02.01.2007 22:02:35 / hlussan
jæja ég er á lífi en lái ekki þeim sem hafa tekið mig út af
listanum sínum  ég er sem sagt búin að vera í rokna matarstuði
síðustu mánuði og er að keppast við að ná mér á strik og dagur á
morgun er dagurinn sem lífið góða hefst á ný  ég ætla að byrja á
því að taka smá hreinsunardaga, ss drekka vel af vatni,
vatnslosandi te og fisk, kannski ég taki pínu hörfræarolíu
(vatnslosandi lyf, stólpípur og fleira  nei smá grín, ætla
kannski ekki að missa mig) Ætla að hætta í nammi, ís og sukki og
borða eftir klukkan 8 á kvöldin, allaveganna á meðan ég er ekki að
borða eftir danska, ætla að byrja á því hugsanlega á mánudaginn
næsta, en taka vel á melónum og þess háttar þangað til, kannski
líka ég tengi kanil í æðina á mér  hlít að fá sykurfall ef ég
hætti að borða eins og síðustu daga  jæja allaveganna gleðilegt
nýtt ár og takk fyrir það gamla
»
08.09.2006 20:47:11 / hlussan
»
02.09.2006 12:40:02 / hlussan
Jæja þetta verður svona súr, sætt blogg. Ég stóð mig bara helv..
vel í síðustu viku, ekki alveg fullkomin en gekk vel og náði af mér
2 kg og loksins 30kg takmarkinu í vigtun hjá ddv  voða voða
gaman. Kom svo heim og var matarlaus og litli snáðinn enn og aftur
orðin veikur. Komst ekki í banka og var svo svöng að ég endaði með
að borða bara vitleysu og er enn að því  Svo nú er takmarkið að
hugsa. Vikan er ekki ónýt þó partur af henni sé það  það er
enginn fullkomin (þó ég sé ansi nálægt því )  vonandi léttist
ég þó smá í vikunni og yrði sátt við 200gr, eða allaveganna ekki
neitt upp á við. Ætla að standa mig vel það sem eftir er af deginum
og vikunni. Á mánudaginn er svo planið að fara að redda fisk,
kjúlla og grænmeti og fylla skápin af þessu gúmmilaði. Svo er bara
að fara að elda góðan mat og borða vel og mikið
»
24.08.2006 13:19:55 / hlussan
Jæja komin aftur, hæ og hó Fílefld, gékk ekki lengur að vera
í þessu hangsi þannig að ég skelti mér á nýliðafund í gær og er
alveg viss um að ég hafi fengið ddv bakteríuna í hausinn á nýju.
Dagur eitt í dag, ekki frá því að það sé aðeins að herðast um
garnirnar, allavega gefa frá sér einkennilegan verk og hljóð. Ég
hef heyrt áður talað um þetta og reynt að googla mig til og hef
komist að því að almenningur kallar þetta hungur eða svengd 
Ætla að breyta tickernum mínum núna þannig að ég set mér 10kg í
einu sem ég tel að. En fyrir alla muni viljiði muna að ég er sko
búin með 30kg 
Það er sko plönuð, greidd og áætluð ferð til USA með vinkonunum
þann 18 okt sem gefa mér 8 vikur og markmiðið er að ná sem næst
10kg fyrir þann tíma. Ástæðan jú þetta eru 40kg verðlaunin mín,
umsamin fyrir fram við makann við 114kg svo nú er að bretta upp
ermar og taka sprettinn 
Annars vonandi gengur ykkur öllum vel, og eins og oft áður ,
KOMA SVO,,,,
»
02.08.2006 08:58:09 / hlussan
Dagurinn í gær, ekki alveg 100% en áleiðis 
MM: flatkaka með klípu og osti, átti ekki
ávöxt / hádegi: skyr.is, gulrætur og
kringla (of mikið af brauði ) /
kvöldmatur: grillaðar pylsur, salat og
hvítlaukssósa úr sýrðum og kryddi, 1 dós vanillu létt jógúrt, /
kvöld: ávöxtur.
ok var ekki nógu dugleg að vigta, eða telja ofan í mig,
passaði ekki ávextina mína vonandi fer þetta að koma, ekkert
óhollt annars, en átti svolítið erfitt með að halda mig úr
kælinum.
Fór annars í ræktina í gær og tók rosalega á, geggjaður tími og
fór kófsveitt þaðan skellti mér á vigtina í morgun, sem er ekki
frásögu færandi nema það að hún fór upp á við núna á þessum tvemur
dögum, 85kg En ætla ekki að fara naga mig út af því, gæti
verið svo margt tilfallandi. Er ekki búin að vera að drekka
nægilega mikið vatn, hef borðað mikinn ost og létt ost, reyktan og
unnin mat, ekki nóg af ávöxtum, of mikið brauð og svona. Hætt að
blekkja sjálfa mig á því að þetta komi mér á óvart, allaveganna
ekki í þetta skiptið. Núna verður bara einbeitt sér að því að fá
sér meira vatn, ávextina og borða fisk.
Hætti að vinna eftir þessa viku og þá kemst vonandi allt í sitt
gamla horf 
»
01.08.2006 11:29:27 / hlussan
Jæja ég er hérna sko ennþá, en er búin að vera í miklum
barningum við hausinn á mér. Dagur 1 í gær og er að vona að nú sé
ég að ná sönsum Hræðist ískyggilega að hendast upp í 90kg á
methraða þannig að nú er að taka á því og herða beltið 
ég ætla mér að skrifa mér matardagbók hingað inn og svona var
gærdagurinn
mm: 30gr brauð, klípa, ostur 25gr og
epli/ hádegismatur: 150gr kotasæla, 350gr
grænmeti, 2 flatkökur (önnur í stað ávaxtar) /
kvöldmatur: 200gr grænmeti og reyktur lax 120gr
smá sýrður rjómi / kvöld: 2 lítil epli og 1 kiwi,
mjólkurglas
ég veit, ekki alveg 100% en mun nær því en fyrri dagar

Já enn að veltast um í 84kg aðeins upp og niður, þannig
tickerinn minn óbreyttur í bili og eins og er þakka ég bara guði
fyrir að hann er ekki komin langleiðina upp aftur 
Stefnan tekin á það að verða orðin 80kg í lok ágúst. Þið sem
tókuð Ívar (eins og ein kallar hann) frá mér, vinsamlegast
deilið honum. Eða er hann bara farin í sumarfrí Það er kannski
ekki hægt að ætlast til að hann komi slefandi til baka eftir að
hafa verið kastað sí svona út í horn 
»
09.07.2006 22:54:21 / hlussan
Hegðunin er ekki alveg að fylgja huganum hér er undanfarið að
detta í sukk á helgum og er engan veginn að fíla það lýður illa
og langaði að kasta upp eftir gommu af kjúlla, frönskum og ís í
kvöldmat. Fyrir það hafði ég borðað kókosbollu, rjómakúlur og kex
ef einhver þarna úti er að spá í að stíga hliðarskref vil ég
minna þá sömu/sama á að það er ekki þess virði gubb. Var að spá
í hverju ég ætti að fara í vinnuna á morgun, hvort ég ætti eitthvað
nógu stórt fyrir svona feitabollu eins og mig. Allir væru farnir að
tala um það hvað ég væri aftur að fitna og só on, Þetta gerist ef
maður er ekki að standa sig og svona fer hausinn með mann. Plís ef
einhver á góð ráð hvernig á að vinna á svona andskota þá eru þau
svo vel þeginn. það sem mér finnst líka gerast þegar ég borða svona
óhollt er að ég nenni ekki endilega að fara sofa snemma eða á
æskilegum tíma. Mér er sama þó ég verði þreytt, tussulega og ósofin
þegar ég mæti í fyrramálið og ég hlýt að geta hent eitthverjum
lörfum utan á mig, svona bara til að hylja nekt mína Svona
langar mig ekki að vera, svona ætla ég ekki að verða. Mig langar að
borða alltaf holt og líða vel eins og ég geri á danska, vera vel
til höfð osfrv. vá er í geðveikum sykurpúka viðbjóði hérna að
mér líður eins og á trúnó eftir áttunda glas. Er búin að þyngjast
aftur upp í 85kg ef ekki 85.5. Hvað á ég að gera, hvernig á maður
að ná valdinu á ný. Ekki bara á morgun, eða hinn, heldur út þessa
viku, þá næstu og næstu og svo þá næstu. Hvenær sé ég 79.9 á
vigtinni minni, hvernig endar þetta verð að taka mér taki maður.
Kannski ég gefi mér bara einn good morning
var að spá í hvort ég ætti að verðlauna mig fyrir hvert kg þar
til ég er komin niður fyrir 80kg, veit það er nú hálfgert dekur, en
ef ég geri það ekki hver gerir það þá ok pæling í
verðlaunum:
84kg: litun og plokkun 83kg:
???????? 82kg??????? 81kg: ????????? 80kg???????? 79kg:
húðhreinsun. Getur einhver kannski fyllt í spurningarmerkin
mín þarf ekki að vera mikið eða dýrt, aðallega að það sé
eitthvað sem bætir útlitið og líðanina..
»
04.07.2006 22:46:00 / hlussan
Held bara hreinlega að ég sé með ritstíflu á við verstu
hægðatregðu. Spurning hvort maður geti fengið eitthvað við þessu.
Kannski liðkandi lyf á fingur, örvandi fyrir heilan og hreinlega
nokkrar gleðipillur svona djöst for þe fön of it og ekki væri nú
verra að léttast bara sí svona af þeim í leiðinni annars er nú
sennilega til lyf fyrir þessu öllu í einu,, með öðrum orðum
amfetamín en held ég kjósi, ja í bili allaveganna, að halda mig
við ristífluna, kannski að ég prófi nokkrar tregðutöflur og athuga
hvort það fari ekki allt af stað í hausnum í leiðinni 
Annars er ég farin að vinna aftur, já já alltaf að bjarga
mannslífum og svona, eða koma þeim í klandur hehe nei nei ætli
ég sé nokkuð dr house, bara svona þokkalega nýbyrjuð
heilsugæsluhjúkka sem gargar á aðstoð ef hið ókunnuga hendir sér
upp á yfirborðið Ég er bara alveg svakalega sátt við að vera
farin að vinna og kallin hér heima með piltana okkar í
fæðingarorlofi, svo hann er húsmóðirin þessa stundina hér á bæ

Ég er nú mikið búin að vera að spá í þessa rigningu, mér var
alltaf sagt þegar ég var yngri að mjög fróðum eldri borgurum að
þegar það rigndi væru guð og englarnir að gráta. Ég vona svo
sannarlega að það sé ekki málið, mikið svakalega hljóta þau þá að
vera sorgmædd þetta sumarið En það þýðir ekkert að sitja inni
og býða eftir því að það stitti upp, er alveg farin að sjá það, þá
er bara að taka út regngallan og skella sér undir regnhlífina á
pallinum, spurning um að hífa upp markhýsu, kaupa gashitara og
jafnvel kvekja varðeld hér fyrir utan. Látum ekkert veðrið stoppa
okkur. En þar sem ég ætlaði að verða svo brún í sólbaði þessa
daganna sá ég fram á að sólböðin mín yrðu að fara fram á
sólbaðsstofu mosfellsbæjar 
Jæja skráði mig á 8 vikna átaksnámskeið og byrjaði á minni
fyrstu ævingu í dag. Það kom mér svo sem ekkert á óvart að
bingóvöðvarnir (ef vöðva mætti kalla) eru ekki alveg upp á sitt
besta og ég þurfti að blása eins og með hverri hríð til að halda út
þær ævingar sem styrkja eiga þennan tiltekna vöðva. Vona í
kjölfarið (eftir 8 vikur í útvíkkun) að vöðvinn verði orðin það
þokkalegur að næst þegar ég fer í tónabæ muni enginn verða fyrir
óviljandi höggi þegar ég fæ bingó 
Jæja aldeilis að það losaðist um stífluna eftir skoppið í dag,
held áfram minni þyngd, en stefni á um 5kg tap á þessum 8 vikum,
þegar mínusað hefur verið við þau 40kg sem ég kem til með að bæta á
mig sökum vöðvauppbyggingar var 34.5% fita og vonandi kem ég
mér niður fyrir 30 á námskeiðinu. Jæja upp upp allir mínir
bloggarar, hér ví gó agen...
»
15.06.2006 09:26:38 / hlussan
Get hreint út sagt ekki hamið mig á montinu núna og gat
ómögulega beðið eftir því að kallin kæmi heim úr vinnunni til að
taka af mér myndir til að setja í þetta blogg Er að missa mig,
langar að öskra út í vindin. Ég er búin að léttast um 30KG, 30KG,
30KG ó my god. Mikið hrikalega er ég glöð. 84 kg í morgun,
alveg sama hversu oft ég steig á vigtina, ætlaði ekki að trúa
þessu. Þetta þýðir einnig að ég er komin undir offitu flokk
samkvæmt BMI stuðlinum og það hef ég ekki verið síðan fyrir 7 árum
Mikið hrikalega er ég stolt af mér. Já þið sem lesið
verðið bara að fá gubbuna yfir þessu sjálfselsku tali, en það
verður bara að hafa það, ég er frábær hahahahahahahahaha.
Jæja búin að pústa smá. Vigtun í garðabæ á eftir, sýnir vonandi
spennandi tölur (er by the way ekki búin að ná 30kg þar, vegna þess
að ég byrjað áður en ég mætti þar) En engu að síður að léttast

set inn myndir vonandi í kvöld, til að monta mig meira 
»
13.06.2006 10:31:10 / hlussan
»
Síður: 1 2 3 ... 7
|
|