Jæja þetta verður svona súr, sætt blogg. Ég stóð mig bara helv..
vel í síðustu viku, ekki alveg fullkomin en gekk vel og náði af mér
2 kg og loksins 30kg takmarkinu í vigtun hjá ddv

voða voða
gaman. Kom svo heim og var matarlaus og litli snáðinn enn og aftur
orðin veikur. Komst ekki í banka og var svo svöng að ég endaði með
að borða bara vitleysu og er enn að því

Svo nú er takmarkið að
hugsa. Vikan er ekki ónýt þó partur af henni sé það

það er
enginn fullkomin (þó ég sé ansi nálægt því )

vonandi léttist
ég þó smá í vikunni og yrði sátt við 200gr, eða allaveganna ekki
neitt upp á við. Ætla að standa mig vel það sem eftir er af deginum
og vikunni. Á mánudaginn er svo planið að fara að redda fisk,
kjúlla og grænmeti og fylla skápin af þessu gúmmilaði. Svo er bara
að fara að elda góðan mat og borða vel og mikið